BJÖRGVIN FRANZ
LEIKARI & FYRIRLESARI

AFHVERJU FYRIRLESTRAR?
Björgvin Franz klessti á vegg út í Minneapolis árið 2011 eftir að hafa flust þangað búferlum ásamt fjölskyldu sinni. Fram að því hafði áhersla á vinnu verið (að hans mati) göfug og óbrigðul lífsstefna þar til hið nýfundna fjölskyldulíf í Bandaríkjunum umbreyttist í depurð og vanlíðan.
Þverfaglegt Meistaranám í University of Minnesota með áherslu á heilbrigð orkuskipti, hleðslu og slökun varð kveikjan að gerbreyttum lífsstíl Björgvins sem hann hefur fylgt síðan.
Þessar gagnreyndu aðferðir hafa svo orðið grunnurinn að tveimur fyrirlestrum hans; annarsvegar Okið Undan Sjálfum mér og Fjörugar Leiðir til Færni, sem hann hefur flutt fyrir þúsundir starfsmanna í yfir 40 fyrirtækjum, skólum og bæjarfélögum víðsvegar um landið.








.png)
OKIÐ UNDAN SJÁLFUM MÉR
30 - 45 mínútur
Hreinskilinn fyrirlestur þar sem Björgvin lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju.
Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu vinum.
Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til að þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til að öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu.

FJÖRUGAR LEIÐIR TIL FÆRNI
30 - 45 mínútur
Fjörugar leiðir til færni er nýjasti fyrirlestur Björgvins þar sem hann fer markvisst í gegnum fimm gagnreyndar aðferðir til að ná öflugri árangri í starfi. Hann leggur sérstaka áherslu á flæði og hvernig nýta megi starfsorku á skilvirkan og öflugan máta.
Hann sýnir fram á aðferðir til að auka jafnvægi milli tækifæris og getu, hvernig öðlast megi raunverulega starfsánægju með skýrri markmiðasetningu og mikilvægi þess að taka gleðina alvarlega.
UM BJÖRGVIN FRANZ
Björgvin Franz Gíslason útskrifaðist frá leiklistardeild LHÍ vorið 2001 og hefur leikið margvísleg hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hefur verið tilnefndur til fjölda verðlauna og hlaut Grímuverðlaunin sem Söngvari ársins árið 2023. Hann hefur leikið burðarhlutverk í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum bæði hérlendis og erlendis og starfaði um árabil sem umsjónarmaður Stundarinnar Okkar sem vann meðal annars Edduna fyrir flokkinn
“Besta barnaefnið.”
Eftir Meistaranám sitt frá University of Minnesota var honum boðið starf sem kennari hjá Stjórnendanámi Símenntunar Háskólans á Akureyri og hefur starfað þar síðan árið 2018 samhliða leiklistinni.

BÓKANIR &
FYRIRSPURNIR
Bókanir og fyrirspurnir vegna fyrirlestra fara í gegnum Móðurskipið.


